8.6.2025 | 07:57
Imane Khelif boxari er karlmaður- hverjum datt það í hug!
Svik komast upp um síðir. Að sjálfsögðu er hann karlmaður. Hefur aldrei verið neitt annað. Í hvaða hugsana- og skynsemisrofi var fólk sem hélt öðru fram. Það sést langar leiðir að hann er karlmaður.
Margir fengu orð í eyra fyrir að halda sannleikanum fram. Fjölmiðlar fóru á flug með lygina og sökuðu mann og annan fyrir fordóma. Hér á landi gerðist slíkt hið sama. Þingmaður Viðreisnar Sigmar Guðmundsson og Jóhannes Þór lögðust á árina sem og aðrir sem telja sig ,,gott fólk. Margir fréttamenn töluðu um ,,hana en ekki hann eins og var og er viðeigandi.
Hann er bannaður frá kvennaflokki- að sjálfsöðgu
Fyrr í vikunni bannaði World Boxing Khelif að berjast gegn konum á heimsmeistaramótinu í Eindhoven, nema meistarinn gengist undir kynjapróf, hann neitað. Kemur ekki á óvart!
Margir fjölmiðlar földu athugasemdir fólks á samfélagsmiðlum sem þeim líkaði ekki. Notendur sem sögðu boxarann karlkyns féllu ekki í kramið. En þeir geta ekki eytt athugasemdunum og fylgjendur geta skoðað falin svör ef þeir kjósa.
Tugir annarra athugasemda voru faldar, allar fyrir að fullyrða að hnefaleikakappinn væri karlkyns.
Einn þeirra, Hatkeshiator, sagði: ,,Það er varla verra en að þykjast vera stelpa svo þú getir barið gellur á meðan þær óttast bann ef þær kvarta. Náðu tökum á þér."
Kyle Reese, annar X notandi, skrifaði: ,,Ég held að skaðinn sem geðsjúkur maður hans olli konum hafi verið miklu meiri."
Florence Jeffries sagði: ,,Hann kýlir konur. Hvað með skaðann, líkamlegan og andlegan, sem þeir urðu fyrir? Hann veit að próf hafa sýnt að hann er með XY litninga."
Einn var falinn fyrir að endurtísta ummælum JK Rowling, sem sagði: ,,Fjölmiðlar höfðu allar þær sannanir sem þeir þurftu, en kusu að afbaka, hylja og afvegaleiða vegna þess að raunveruleikinn var pólitískt óþægilegur. Þeir sögðu að Khelif væri kvenkyns. Þeir höfðu rangt fyrir sér. Þeir sögðu áhyggjusama einstaklinga þröngsýna. Þeir höfðu rangt fyrir sér."
Hér á landi kepptust menn við, Sigmar og Jóhannes
Já þeir vaða ekki í vitinu þessir einstaklingar. Kristinn H. Guðnason sá aumi blaðamður á Dv lét sitt ekki eftir liggja. Óhuggulegt er að fylgjast með fólki níðast á þessari konu er ein fyrirsögnin hans.
Sigmar Guðmundsson þingmaður
Það er algerlega ömurlegt að lesa sum kommentin. Fólk nennir ekki að lesa sér til heldur ryðst fram með sleggjudómana og fullyrðingar sem eru auðhraktar. Heldur svo áfram þrátt fyrir leiðréttingar, segir Sigmar.
Nefnir Sigmar að faðir Khelif hafi ekki vilja að hún færi í hnefaleika, það væri ekki kvennaíþrótt.
Sumt sem sagt er um hana er bara pjúra mannvonska og ekkert annað. Andstæðingur hennar í hringnum síðast á talsverða sök á þessu fári miðað við lýsingarnar, segir Sigmar.
Jóhannes Þór lét ekki tækifærið fram hjá sér fara
Annar sem lætur í sér heyra er Jóhannes Þór Skúlason, framkvæmdastjóri Samtaka ferðaþjónustunnar og stjórnarmaður í trans Samtökunum 78.
Á samfélagsmiðlum vísar hann í grein þar sem fjallað er um málið og hina ímynduðu transkonu J.K. Rowling.
Það skynsamlegasta sem ég las á internetinu í dag um hnefaleika kvenna á Ólympíuleikunum. Þetta upphlaup snýst nefnilega ekki um íþróttirnar. Mæli með að fb vinir mínir sem lásu fyrirsagnir í dag og hoppuðu á vagninn renni í gegn um þetta, segir Jóhannes.
Ruv- vókfréttastofan sömuleiðis
Ekki lágu þeir á lyginni. Reyndu að blekkja skynsamt fólk um að boxarinn væri kona. Menn áttu sem sagt ekki að trúa sínum eigin augum samkvæmt fréttamönnum Ruv. Þeir gengu svo langt að kalla hann hnefaleikakonu. Hvílík niðurlæging fyrir konur almennt og ekki síður þær sem hann barði í hringnum.
Ágúst Orri á Vísi
Blaðamaðurinn talar um að hann hafi orðið fyrir aðkasti eftir að hafa barið konu í hringnum. Ágúst Orri talar ekki um lélegt siðferði stráksins að berja konur. Keppinautur hans var kona og nei Ágúst Orri, Angela Carini sakaði hann ekki um að vera karlmann, hann er karlmaður og það vissi hún. Hún sagði bara sannleikann.
Nei vókisminn tröllríður fjölmiðlamönnum á Íslandi. Enginn þorir að segja sannleikann, bara lepja þvæluna upp eftir öðrum. Svona fréttamönnum er ekki viðbjargandi.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
7.6.2025 | 09:39
Nýja slagorð trans hreyfingarinnar- verið hrædd við okkur-
JK Rowling tjáði sig um nýtt slagorð sem Trans Rights Activist (TRA) hreyfingin hefur tekið upp og gefið í skyn að það sé hannað til að gera ,,konur hræddar."
Hún birti svar við myndbandi Söruh Jane Baker, kvengervil (trans-konu), sem afplánar lífstíðardóm fyrir að ræna og pynta bróður stjúpmóður sinnar og tilraun til að myrða annan fanga.
Baker, 55 ára, lést næstum því eftir að hafa skorið af sér eigin eistu með rakvélablaði á bak við lás og slá árið 2017. Í myndbandinu stendur hann topplaus í miðri Whitehall, hindrar umferð og er umkringdur öðrum topplausum kvengervlum, þar sem hann öskrar ,,JK Rowling, vertu hrædd við okkur. Kellie-Jay Keen, vertu hrædd. Keir Starmer, vertu hræddur."
Rithöfundurinn svaraði: ,,Nýja slagorðið trans- aðgerðasinna ,,Vertu hræddur" er einfaldlega heiðarlegasta slagorð þeirra til þessa. Þeir hafa óskað þess að konur séu hræddar og þess vegna hótað þeim reglulega líkamsmeiðingum.
Áhugaverðara er, hvers vegna finnst ofbeldisfullum fyrrverandi fanga hann vera svo ósnertanlegur að hann geti gert þetta á almannafæri?"
Myndbandið birti X-notandinn Gerry Keogh, sem lýst er í ævisögu sinni sem ,,Glasgow strák í Brum." Hann sagði: ,,Vertu hræddur er hrollvekjandi ný mantra trans-samfélagsins."
Rowling sagði einnig: ,,Mig grunar að þeir telji að lögreglan taki ofbeldishótanir gegn konum ekki alvarlega. Þeir telja að lögreglunni þyki hótanir í garð kvenna ekki mikilvægar, jafnvel verðskuldaðar. Þeir telja að lögreglan sé með þeim í liði. Og þó að mér finnist lítið gaman að segja það, þá held ég að þeir hafi rétt fyrir sér."
Svo bætti hún háðslega við: ,,Svo viðkvæm. Svo kúguð. Svo jaðarsett."
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
6.6.2025 | 09:46
Fulltrúi SÞ varar við að karlmenn sem nauðga velji sér kyn
Ritstjórn Vísi er söm við sig. Halda vókinu fram í rauðan dauðan. Jafn mikilvæg skilaboð og skýrslan sem fulltrúi SÞ sendi frá sér skal ekki birt á miðlinum.
,,Alsalem bendir á að slík nálgun ,,vanræki þarfir kvenna og stúlkna og skerði öryggi þeirra.
Í skýrslunni varar hún við að konur hefðu verið ,,útskúfaðar, ráðist á þær og þeim refsað af breskum stjórnmálamönnum, háskólum og fjölmiðlum fyrir að gagnrýna kynjahugmyndafræðina."
Í skýrslunni er talað um afbrot sem framin eru af körlum, sérstaklega nauðganir, sem skráðar eru á konur því karlarnir segjast vera konur. Hvað það er í umfjölluninni sem Vísi þótti svona óviðeigandi skal ósagt látið. En þetta sýnir enn og aftur trans Samtökin 78 hafa óheftan aðgang að fjölmiðlinum til að miðla hugmyndafræðinni sem þeir boða á meðan staðreyndir fá ekki birtingu.
,,Maya Forstater, framkvæmdastjóri kvenréttindasamtakanna Sex Matters, sagði: ,,Skýrsla Reem Alsalem fyrir SÞ er mikilvæg og alvarleg lesning. Hún býður upp á alþjóðlegt sjónarhorn á bresti í stofnunum hvatta áfram af hugmyndafræði sem hefur valdið miklum skaða á réttindum kvenna og stúlkna í Bretlandi á undanförnum árum.
Nútíminn hins vegar birti umfjöllunina, takk fyrir það.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 09:50 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
5.6.2025 | 08:01
Sumarleyfi kennara og endurmenntun
Nú streyma börnin úr grunnskólunum. Skólaslit verða á næstu dögum í flestum skólum. Börnin komin í tæplega 10 vikna sumarfrí. Þau gleðjast og kennarar með.
Þá er komið að endurmenntun margra kennara. Sumir nota hluta sumarsins í endurmenntunina. Ég hvet kennara sem þekkja ekki líffræðina nógu vel að mennta sig betur í henni. Kennara á öllum stigum.
Mennta sig til að miðla líffræðinni til barna í grunnskólanum.
Mennta sig til að segja satt, ekki ljúga að börnunum.
Kennarar kenna nemendum að segja sannleikann, gott og vel. Segja það gott nesti út í lífið. En mikilvægast er, að kennarar sem ástunda lygar í skólastofunni byrji á sjálfum sér. Læri að segja satt.
Hér geta kennarar, og forystusauðir Kennarasambandsins, tekið forskot á sæluna. Rætt er við prófessor í líffræði sem veit sínu viti. Viðtalið er virkilega gott. Áhugavert að hlusta á hvernig hægt er að greina beinin.
Smellið á krækjuna: Trans Ideology vs. Biology | Peter Boghossian & Luana S. Maroja
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
4.6.2025 | 09:12
Höfðar mál gegn stéttarfélagi hjúkrunarfræðinga
Mál hjúkrunarfræðingsins sem er í málaferlum við vinnuveitanda sinn og kvengervil, sem er læknir, hefur höfðað mál gegn stéttarfélaginu sínu. Félag hjúkrunarfræðinga studdi hana ekki þegar hún leitaði eftir stuðningi.
Eftir 30 ára aðild gekk Sandie Peggie að því vísu að hjúkrunarfélagið myndi styðja hana. Hún vildi aðstoð þegar vinnuveitendur höfnuðu því að vísa kvengervli, með kynfæri karlmanns, út úr einkarými sem ætlað er konum sem starfa á sjúkrahúsinu.
Kvörtun hennar hafði víðtækari afleiðingar, hún var send í leyfi því hún móðgaði kvengervilinn og stjórnendur sjúkrahússins tóku mark á því.
Sandie óskaði eftir lögfræðiaðstoð en fékk ekki. Það er athyglisvert því um allan heim eru kvenkyns hjúkrunarfræðingar um 95-98% af stétt hjúkrunarfræðinga.
Stéttarfélög hafa litið í hina áttina
Í öllu kynjaköltinu sem á sér stað víða um heim hafa stéttarfélög verið meðvirk, líka á Íslandi, með þeirri ranghugmynd að karlmaður geti verið kona og öfugt.
Helen Joyce forstöðumaður Sex Matters segir að stéttarfélög hafni blygðunarlaust félagsmönnum sínum þegar þeir berjast fyrir einkynja rýmum. Forsvarsmenn stéttarfélaga hafi staðið aðgerðalausir hjá meðan konur voru reknar úr vinnu fyrir það eitt að segja að kynin séu tvö.
Sigríður Svanborgardóttir orðaði það réttilega í grein á Visi; ,, Þegar stéttarfélag bregst og þá sérstaklega við brotum sem eru endurtekin, skipulögð og koma frá yfirmönnum sem njóta verndar yfirvalda þá verður það að pólitísku máli. Þá snýst það ekki lengur um eitt afmarkað mál heldur um grundvallarspurningar um vald, réttlæti og hverjum við treystum til að verja okkur gegn óréttlæti. Þegar Sameyki kaus að gera ekkert, varð það hluti af vandanum ekki lausninni. Nú á það sama við um Félag hjúkrunarfræðina í Bretlandi.
Búast má við röð málaferla
Búast má við, að málið hrindi af stað lögsóknum á hendur stéttarfélögum sem hafa látið félagsmenn sína róa fyrir trans-hugmyndafræðina.
Mörg stéttarfélög styðja ekki einkynja rými eða gagnrýnar skoðanir á kynjaóreiðuna, sem í sjálfu sér er hugmyndafræði ekki vísindi né sannleikur.
Hópur hjúkrunarfærðinga á Darlington sjúkrahúsinu bíða áteka, en þær höfnuðu kvengervli inn í eikarými kvenna.
Meðvirk stéttarfélög finnast víða um heim.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
3.6.2025 | 09:47
Af hverju eru TERF-arnir svona ómögulegir
Trans aðgerðasinnar hafa kallað fólk, sem berst fyrir réttindum kvenna og barna, TERF (trans-exclusionary radical feminis), af því þeim líkar ekki málflutningur þeirra.
TERF sinnar segja frá staðreyndum, Telling Everybody Real Facts, og því er þetta réttari skýring á skammstöfuninni.
Það sem trans aðgerðasinnar átta sig hins vegar ekki á, er að margir bera TERF heitið með stolti. Það sýnir að þeir hinir sömu berjast fyrir réttindum sem á sér stað í raunveruleikanum, ekki ímynduðum veruleika einstaklinga.
Biskup Íslands varð fyrir nettröllum af því hún vill viðhalda lyginni með börnin og kynóreiðuna svo hún getur rétt ímyndað sér hvaða skammt TERF-arnir fá frá trans-aðgerðasinnum sem hún þekkist.
Fór óvart á kvennaklósettið
Steve QJ segir (sjá heimild) frá því hvernig hann fór óvart inn á kvennaklósett. Konan sem var þar fyrir horfði á hann skelfingu lostin og ég ekki síður á hana segir hann. Bakkaði út. Þegar það rann upp fyrir henni að þetta var óviljaverk breyttist svipur hennar. Hún benti honum brosandi á hvar karlar létta af sér.
Baráttumál kvenna og TERF-ara
Baráttumál kvenna eru einkarýmin, fangelsi, salerni og baðherbergi. Steve segir frá hvernig honum datt í hug upplifun karla, sem skilgreina sig sem konur, þegar þeir opna baðherbergisdyrnar og sjá skelfingu lostna konu. En þeir eru ekki eins sáttir og hann við að ganga í burtu.
Enginn karlmaður á að fara inn í rými kvenna, það vita karlmenn. Karlmennskan segir okkur það segir Steve, karlmenn vita það. En samt eru alltaf einhverjir karlmenn sem komast upp með það að troða sér inn í kvennarými.
Getum við ekki sammælst um að kalla það eitraða karlmennsku eins og Páll Vilhjálmsson viðraði í bloggi sínu?
Flestir virða rétt kvenna til einkarýma. Því miður er það svo að einhverjum karlmönnum tekst að troða sér inn þar sem þeir eiga ekki heima og eru ekki velkomnir. Eina sem slíkir karlmenn þurfa er að sannfæra sjálfan sig um að konan sem varð skelfingu lostin sé bæði hatursfull, vond og þröngsýn. Ekki skemmir að bæta TERF við. Svo getur viðkomandi fundið meðreiðarsveina á netinu til að samþykkja álitið á konunni.
Tala hvor við annan
Steve bendir á nokkur ummæli karla um notkun kvennasalerna sem eru vísvitandi gerð til að fara yfir mörk kvenna.
,,Er einhverjum öðrum sem finnst óþægilegt við að nota kvennasalernið?" spyr einn notandi og viðurkennir að honum myndi ,,líða eins og algjöru skrípi" að nota kvennasalernið og notar kynhlutlausa aðstöðu í staðinn.
Eða ,,Ég notaði loksins kvennaklósettið í vinnunni...aðallega af illsku," segir annar, og segir söguna af því hvernig pirringur ,,staðalímyndar" boomer með þvinguðum fornöfnum var það sem hann þurfti til að sigrast á langvarandi óþægindum sínum við að nota kvennaklósettið í vinnunni (þetta þrátt fyrir að hafa líka kynhlutlausan valkost).
Og mitt persónulega uppáhald, ,,Hvernig byggðir þú upp hugrekki til að nota rétta baðherbergið?"
Ekki aðeins vegna þess að ein áreiðanlegasta vísbendingin um að þú notir ,,rétta" baðherbergið, er að það krefst ekki hugrekkis, heldur líka vegna þess að trans-konan sem um ræðir viðurkennir að hafa aldrei verið í hættu í karlaklefanum. Hann vill bara aðstoð við að vinna upp nógu sterka réttlætistilfinningu til að nota aðstöðu kvenna.
Og auðveldasta leiðin til að búa til þann rétt er að sannfæra sjálfan þig um að allir sem efast um þig séu skrímsli.
Rithöfundurinn
Þú heldur því fram að fólk eins og J.K. Rowling ,,hafi blóð á höndum sér" (eða hóti að nauðga og/eða drepa það) fyrir að þrjóskast við að benda á að konur séu til og að karlar ættu að halda sig utan þeirra rýma.
Þú segir sjálfum þér að það, að ganga inn á kvennaklósett sé ekki brot á mörkum heldur hugrekki.
Og þú sannfærir sjálfan þig um að konur, eins og sú sem vísaði mér inn á karlaklósettið, séu skiljanlega ekki ánægðar með nærveru ókunnugs manns, heldur ,,óska þér dauða" með því að biðja þig um að virða einföld, vel þekkt mörk (mörk sem eru svo rótgróin að þau eru skrifuð í þrjár aðskildar greinar Genfarsáttmálans).
Að trúa er ekki sama og vera
Vegna þess að ef þú trúir þessu öllu geturðu kannski platað sjálfan þig til að trúa því að vanlíðan þín snúist ekki um að þekkja muninn á réttu og röngu. Það er ekki vegna þess að þú þvingar þig inn á stað sem þú veist að þú átt ekki að vera á, heldur vegna þess að hver kona sem vogar sér að segja ,,nei" við þig er ,,meindýr" eða ,,skítur" eða ,,ómannlegur ruslahaugur"."
Ég viðurkenni að það er grimmt að gaslýsa lesbíur og láta þeim líða ,,líða eins og þær séu misheppnaðar" vegna þess að þær vilja ekki stunda kynlíf með hinu kyninu.
Ég vona að ég viðurkenni að það er grimmt og hættulegt að krefjast þess að konur bæli niður fullkomlega eðlilega vanlíðan sína gagnvart körlum sem fela sig á bak við lúxusviðhorf á sama tíma og þeir hóta þeim gróteskum lýsingum á ofbeldi og morði.
Kvennarými
Ástæðan fyrir því að við höfum kvennarými er til að bjóða konum næði og vernd gegn körlum sem hugsa svona. Rýmin eru til vegna þess að við vitum að af körlum starfar hætta með tilliti til kynferðisofbeldis og ofbeldið minnkar ekki ef karlarnir klæðast kjólum.
Svo til allra sem eiga í erfiðleikum með að skilja þetta, eða það sem verra er þeim sem er alveg sama, til allra sem telja að það sé ,,hysterískt" að vilja rými eingöngu fyrir konur, vinsamlegast ekki hika og hættið að nota einkarými kvenna.
Karlarnir eru þarna.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
2.6.2025 | 07:51
Er Dagný Davíðsdóttir verkefnastjóri hjá Akureyrarbæ hlaupatík trans Samtakanna 78?
Það var undarleg frásögn í Þjóðólfi fyrir skömmu. Svipuð umfjöllun var á Vísi um sama mál. Starfsmaður Akureyrarbæjar virðist hlaupatík fyrir trans Samtökin 78.
Hann gerist hlaupatík af því íbúi á Akureyri, sem hvorki aðhyllist kynjatöltið sem trans Samtökin boða eða heillast af málflutningi þeirra, sinnir sjálfboðnu starfi í þágu kvenna í stofnun sem bærinn á. Trans Samtökin 78 senda póst til Dagnýjar Davíðsdóttur, sem gerist hlaupatík fyrir samtökin. Dagný átti að taka málið föstum tökum. Leynt og ljóst mátti greina að úthýsa ætti konunum.
Um hvað fjallar málið
Einn aðstandandi sjálfboðaliðasamtaka, sem samanstendur af heimavinnandi húsmæðrum, hefur tjáð sig á eigin snjáldursíðu um kvengervla, karla sem skilgreina sig sem konur. Hún benti á að karlar geti ekki gefið brjóst, einhver heilvita maður ósammála því? Forsvarsmaður trans Samtakanna 78 telur þau og önnur ummæli óviðeigandi og því eigi að blanda saman við sjálfboðna starfið.
Akureyrarbær á að grípa til viðeigandi ráðstafana segir í pósti til Dagnýjar. Síðan hvenær ráða trans Samtökin 78 bæjarfélaginu?
Það vita allir að trans-kona (kvengervill) er karlmaður, annars kallaði hann sig ekki sjálfur trans-kona. Og ekkert rangt að segja sannleikann. Hæstiréttur Bretlands dæmi fyrir skömmu að umræddir karlmenn geta ekki verið konur í lagalegum skilningi. Þessu eiga trans Samtökin 78 erfitt með að kyngja.
Verra er þegar hlaupatík samtakanna fer á stúfanna sem starfsmaður bæjarfélagsins. Tekur sér vald sem hún hefur ekki.
Dagný Davíðsdóttir segir það ekki í anda og stefnu sveitarfélagsins að segja sannleikann. Þar hitti hún naglann á höfuðið því í skólakerfinu á Akureyri er viðurkennt að ljúga megi að börnum þegar kemur að kyni og kynóreiðu.
Stangast á við stefnu bæjarins að segja sannleikann um kynjaóreiðuna sem menn hafa fundið upp og margir skólastarfsmenn þar á bæ lepja upp.
Sett ofan í við skólastjóra
Ekki er ýkja langt síðan að Eva Hauksdóttir lögmaður skrifaði grein vegna viðbragða skólastjóra á Akureyri sem hafði óviðeigandi afskipti af skoðunum og skrifum starfsmanns. Sú hegðun var komin á eineltisstig, enda margoft gerð athugasemd við persónuleg skrif starfsmannsins. Alveg ljóst, tjáningarfrelsið á að gefa mönnum leyfi til að hafa ólíkar skoðanir. Annað er óeðlilegt í lýðræðissamfélagi.
Eins má minnast á kennara í sama skóla sem vildi láta reka kennara úr starfi fyrir skoðanir hans. Heiða Björg Guðjónsdóttir hlýtur af þeirri ástæðu að aðhyllist málflutning og lífsskoðun trans Samtakanna 78. Kannski er þar önnur hlaupatík aldrei að vita! Eða eins og þessi bloggari skrifar, Stasi 78.
Hvað er að á Akureyri þegar starfsmenn bæjarins telja það nauðsynlegt að vera hlaupatíkur fyrir trans samtök sem boða hugmyndafræði sem stenst ekki sannleik, raunveruleika og fræðileg vinnubrögð? Svari hver fyrir sig.
Bæjarstjóri þarf að bregðast við
Ljóst er að Ásthildur Sturludóttir bæjarstjóri þarf að kenna starfsmönnum bæjarins út á hvað tjáningarfrelsið gengur. Hvar mörk þeirra liggja. Starfsmenn bæjarins, eins og Dagný Davíðsdóttir og Hólmkell Hreinsson, eiga ekki að taka það upp á sitt einsdæmi að ákveða hvað sé ,,hatursorðræða og hvað ekki. Og enn síður að hlaupa eftir duttlungum trans samtaka.
Mönnum er frjálst að gangrýna málflutning annarra á opinberum vettvangi og hvað þá um mjög umdeild samfélagsmál eins og trans málefnið er. Málaflokkur sem getur skaðað börn.
Því skal líka haldið til haga að þeir sem hafa aðra lífsskoðun en trans Samtökin 78 eiga sama rétt og þeir sem aðhyllast málflutning þeirra og lífsskoðun. Sama rétt til afnota af húsnæði sem tilheyrir hinu opinbera.
Já, Dagný Davíðsdóttir er hlaupatík trans Samtakanna 78 miðað við frásagnir af málinu og Hólmkell líka.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 07:53 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
1.6.2025 | 09:24
Mikið afskaplega á Brynjar Birgisson blaðamaður á Mannlífi bágt
Skrif Brynjars um Eld, formann Samtaka 22, eru orðin ansi pínleg, svo ekki sé meira sagt. Bloggari heldur að Brynjar elski Eld en þorir ekki að tjá hug sinn til hans og því bregðist hann svona við.
Kvennaþing er opið öllum
Nú reynir Brynjar að saka þann sem hann elskar, um að mæta óboðinn á Kvennaþing árið 2025. Til að bæta gráu ofan á svart segir blaðamaðurinn að Eldur hafi dreift áróðursmiðum. Sem sagt sannleikanum. Það kallar Brynjar blaðamaður Mannlífs áróður. Sannleikurinn er áróður. Lægra leggjast blaðamenn ekki eða?
Það sem stóð á umræddum miðum, sem aumingjans blaðamaðurinn kallar áróður, er:
Björgum STELPUSTRÁKUNUM og Björgum STRÁKASTELPUNUM.
Þetta eru kjörorð samkynhneigðra víða um heim til að vekja athygli á trans- væðingu barna sem eru hugsanlega samkynhneigð.
Á Kvennaþinginu, sem var öllum opið, var ekki þétt setinn bekkurinn. Rétt um 40 hræður mættu til að hlusta á áróður trans Samtaka 78. Ekki það, Brynjar á í ákveðnu ástarsambandi við þau samtök. Hann hefur sýnt það í öllum skrifum sínum. Nema karlinn sé á launum hjá þeim til að rægja aðra. Kann að vera, þekki það ekki. Málshátturinn segir; ,,Vér eplin með, sögðu hrossataðskögglarnir.
Haturssamtök eru það ekki
Rétt hjá Brynjari, samtökin 22 hafa verið kölluð haturssamtök. Það er ekki sama og að vera það. Misgáfaðir einstaklingar sem þola ekki að heyra sannleikann um kynjaóreiðuna kalla samtökin þetta og fá svo menn, sem eru ekki skörpustu hnífarnir í skúffunni, til liðs við sig til að bera út óhróðurinn.
Samtökin 22 eiga ekkert skylt við haturssamtök. Bloggari skilur vel að Eldur hafi ekki viljað svara spurningum Brynjars sem á í ástar/haturs sambandi við hann. Fyrr má nú rota en dauðrota. Eldur er skynsamari en svo.
Brynjar gerir sig breiðan
Merkilegt að Brynjar gerir sig breiðan og þykist tala af þekkingu um Genspect. Á þeim ráðstefnum talar fólk sem hefur vit á því sem þau segja og hefur ekkert með ,,hatursorðræðu að gera eins og hann heldur fram, hvað þá áróður. Enn ber hann vanþekkingu sína á borð fyrir alþjóð, alveg á silfurfati. Áhugaleysi Brynjars til að stunda rannsóknarblaðamennsku er algert.
Á ráðstefnum Genspect talar fagfólk sem þekkir málaflokkinn, en Brynjar Birgisson með alla sína visku kallar ,,hatursorðræðu og áróður.
Meðal þeirra sem tala á næstu ráðstefnu eru;
Lisa Littmann, Physician-Scientist
Lionel Shriver , Author and Jonurnalist
Dr. Stephen Levine, Clinical Proffesor og Psychaiatry
Dr. J.D. Haltigan, Developmental Psychogist and Researcer
Dr. Peter Boghossian, Philosopher and Dedagogue.
Shawn Thierry, Attorney and Child Wlfare Advocate
Dr. Eithvan Haim, Surgeon and Medical Whistleblower
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
31.5.2025 | 08:05
Hólmkell Hreinsson forstöðumaður á Amtsbókasafninu líkir konu við nauðgara, rasista og morðingja
Starfsmaður Akureyrarbæjar, yfirmaður bókasafnsins, líkir konu í sjálfboðnu starfi við nauðgara, rasista og morðingja. Vá, menn missa andlitið.
Sá sem fer fyrir bókasafninu, Hólmkell, lætur þetta út úr sér. Það voru skilaboð frá trans Samtökunum 78 sem ýttu honum út í þessa umræðu við heimavinnandi húsmæður. Hann varð full ágengur í að ganga erinda trans-hugmyndanna.
Hvort Hólmkell tengist trans samtökunum á einhvern hátt skal ósagt látið. Allavega þá finnst honum mikilvægara að trans Samtökin 78 hafi ítök á Akureyri en að heimavinnandi húsmæður fái að vera í friði á bókasafninu.
Framkoma hans er með ólíkindum. Konur sem blanda ekki kynjaóreiðunni inn í sjálfboðið starf sitt, annað en Hólmkell sem er launþegi hjá Akureyrarbæ.
Heilaþvotturinn alger
Það er ljóst að starfsmenn Akureyrarbæjar hafa tekið vel við heilaþvottinum frá trans Samtökunum 78 með samþykki stjórnarmanna bæjarfélagsins. Það sýnir Hólmkell með hegðun sinni.
Og skólastjórar á Akureyri sem flagga trans fánanum fyrir andlega óstöðug börn. Fagna veikindum barna með hugmyndafræði í farteskinu sem hefur hvorki sannleik, vísindi eða fræði á bak við sig. Í mínu ungdæmi og námi taldist það löstur að leggjast á óstöðug börn.
Sveitarfélögin leggja fjármagn í þessi trans-samtök sem áreita borgara með þessum hætti. Er ekki tímabært að stoppa fjárausturinn?
Hafi menn skoðað skjáskotin sem trans Samtökin 78 söfnuðu saman og kvörtuðu yfir er ekkert í þeim sem minnir á ,,hatursorðræðu eða illt umtal um kvengervla, heldur sannleik. Heilagan sannleik og ekkert annað.
Hólmkell þarf að leita sér að nýrri vinnu segir hér í spjallinu um aðdraganda málsins.
Hér má lesa umfjöllun um málið.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
30.5.2025 | 08:06
Þúsundir barna svikin
Þúsundir aðgerða á börnum mistókust. Þetta kemur fram í Cass skýrslunni sem jafnframt bendir á skort á vísindalegum sönnunargögnum þegar læknisfræðileg aðgerðum er beitt á börn sem líður illa í eigin skinni.
Þúsundir barna voru svikin. Kynleiðréttingameðferðir barna og unglingar hafa ótrúlega veikar vísindalegar sannanir. Raunveruleikinn er sá að við höfum engar góðar sannanir fyrir langtímaáhrifum meðferðarinnar.
Þetta er dómurinn um núverandi meðferða barna og ungmenna sem kom út í 388 bls. skýrslu sem byggir á fjögurra ára starfi segir Dorte Toft blaðamaður.
,,Það eru fá önnur svið þar sem fagmenn eru eins hræddir við að ræða opinskátt um sjónarmið sín og níðst er á fólki í svo miklum mæli á samfélagsmiðlum og það verður fyrir einelti segir í Cass skýrslunni.
Kannski það sé ástæða þöggunar heilbrigðisstarfsmanna á Íslandi. Börn eru frekar sett í tilraunameðferðir í stað þess að tala um sannleikann og afleiðingar af því sem þeir gera börnunum.
Hvar eru íslenskir blaðamenn, af hverju leggjast þeir ekki í rannsóknarblaðamennsku líkt og sá danski til að bera sannleik á borð fyrir þjóðina.
Í Bandaríkjunum kom út samsvarandi skýrsla á dögunum. Til að forða höfundum frá áreiti, morðhótunum, hótun um ofbeldi o.s.frv. var ákveðið að gefa ekki upp nöfn höfunda. Menn hafa lært af reynslunni frá Bretlandi.
Bandaríksa skýrslan og niðurstöður
Aðalniðurstöður var munur á geðröskunum, sérstaklega þunglyndi, kvíða, sjálfsvígshugsunum, líkamsröskun og vímuefnaneyslu, meðal trans einstaklinga eftir aðgerð.
Af rúmlega 100 þúsund sjúklingum sýndu niðurstöður að þeir sem gengust undir skurðaðgerð voru í marktækt meiri hættu á þunglyndi, kvíða, sjálfsvígshugsunum og vímuefnaneyslu en þeir sem fóru ekki í skurðaðgerð.
Karlar sem fóru í skurðaðgerð sýndu hærra algengi þunglyndis (25.4% á móti 11.5%, RR 2.203, P < 0.0001) og kvíða (12.8% á móti 2.6%, RR 4.882, P < 0.0001). Konur sýndu svipaða þróun, með hækkað þunglyndi (22.9% á móti 14.6%, RR 1.563, P < 0.0001) og kvíða (10.5% á móti 7.1%, RR 1.478, P < 0.0001). Kvenkyns einstaklingar sýndu sérstaklega mikla hættu á þunglyndi (RR 1.783, P = 0.0298) og vímuefnaneyslu (RR 1.284, P < 0.0001).
Hér má sjá, að leynt og ljóst er verið að svíkja þúsundir einstaklinga með gervi hugmyndafræði og ýta þeim út í eitthvað í von og óvon um að afleiðingarnar verði ekki slæmar.
Hvatning til blaðamanna
Eina sem íslenska þjóðin getur gert er að vona að blaðamaður eða menn sjái alvarleika í þessum gervivísindum sem beitt eru á börn, þau sett í tilraunarmeðferðir með samþykki stjórnmálamanna.
Nægar forsendur er að skrifa um hið rétta bæði með Cass-skýrslunni og nú þeirra Bandarísku. Að auki má finna fullt af fræðigreinum sem benda á hversu rangt við meðhöndlum börn.
Alvöru rannsóknarblaðamaður lætur svona tækifæri ekki fram hjá sér fara! Eða?
Heimildir má finna hér og hér.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 08:37 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)